| Sækja leiðbeiningar fyrir Pixel Designer Hér getur þú nálgast notendaleiðbeiningar fyrir Pixel Designer á PDF skráarsniði. Sækja leiðbeiningar |
Hvað er Pixel Designer?
Pixel Designer hugbúnaðurinn er forrit sem auðvelt er í
notkun og er hannað til að auðvelda þér að byggja upp og
skipuleggja dýrmætar minningar þínar inn í ljósmyndabækur
sem þú getur geymt og deilt með vinum og fjölskyldu langt
inn í framtíðina og einnig getur þú gert ýmislegt fleira eins
og tækifæriskort, strigamyndir, plaköt.
Pixel Designer er hugbúnaður sem þú halar niður og vistar á
einkatölvunni þinni þannig að þú getir unnið á þínum eigin
hraða.
Pixel Designer er ekki veflægt forrit. Þegar þú hefur halað
niður Pixel Designer hugbúnaði af www.pixel.is fer vinna þín
algjörlega fram á þinni eigin tölvu. Þetta þýðir að þú þarft
ekki að reiða þig á internettenginguna. Þú getur byggt upp
ljósmyndabókina þína hvar sem er og hvenær sem er! og það
er ÓKEYPIS!
Við hjá Pixel höfum forskilgreint úrval síðusniða fyrir
ljósmyndabók til að hjálpa þér að byrja; þau eru þar aðeins til
að leiðbeina þér og eru sett upp innan hverrar vöru. Þú getur
notað þau með því að velja Page Styles á Valborði
myndasafns, valið það síðusnið sem þú vilt nota og dregið og
sleppt því niður á auðu síðuna þína.
Þú hefur hins vegar fullkomið frelsi og sveigjanleika til að
hanna þitt eigið síðuútlit. Lestu meira um hvernig þetta er
gert og aðrar tiltækar aðgerðir í leiðbeiningum fyrir Pixel
Designer sem hægt er að sækja hér til hliðar.